Hafnar eru framkvæmdir við 1. áfanga nýbyggingar Ásbjarnar Ólafssonar ehf að Köllunarklettsvegi 6.
Byggingin mun hýsa vörugeymslur og skrifstofur fyrirtækisins. 1. áfangi er samtals 2.378 m², þar af 562 m² skrifstofur á milligólfi.
Heildarstærð 1.- og 2. áfanga (fullbyggt hús) er áætluð um 4.755 m².
Conís sér um verkefnis- og hönnunarstjórn, áætlanagerð ásamt umsjón framkvæmda.